• Lýsigagnagátt
  •  
  •  
  •  

ni_vg25r Vistgerðir á Íslandi: land – 1:25.000

Gagnaset (data set) ni_vg25r_3utg:

Vistgerðir á Íslandi: land (Habitat types of Iceland: terrestrial).

Vistgerðakortið sýnir útbreiðslu landvistgerða á Íslandi.

Alls hafa verið ákvarðaðar 64 vistgerðir á landi og skiptast í 12 meginflokka (vistlendi). Innan landvistgerða eru fjórar jarðhitavistgerðir sem finnast á háhita- og lághitasvæðum landsins. Landvistgerðum er skipt upp í tvö þrep.

Við skilgreiningu og flokkun vistgerða á Íslandi var tekið mið af EUNIS-flokkunarkerfinu (European Environment Agency 2012) .

Í 3. útgáfu vistgerðakortsins 2024 eru eingöngu landvistgerðir endurskoðaðar.

Náttúrufræðistofnun Íslands leggur með ritinu Vistgerðir á Íslandi fram tillögur að flokkun vistgerða sem á sér fyrirmynd í samræmdri og viðurkenndri flokkun vistgerða í Evrópu. Flokkunin byggir á rannsóknum víða um land með fyrirvara um að bæta mætti í þá þekkingu. Athuga skal að aðgreining landvistgerða með fjarkönnun reyndist erfið, bæði fyrir lítið grónar vistgerðir sem og vel grónar, einkum innan vistlenda. Því má búast við verulegum skekkjum þótt þær séu mismiklar eftir vistgerðum. Nánari útlistun og mat á skekkjum má finna í aðferðalýsingu og á staðreyndasíðum vistgerða í ritinu „Vistgerðir á Íslandi“.

Frekari upplýsingar um flokkun og skilgreiningu vistgerða má sjá í ritinu: Jón Gunnar Ottósson, Anna Sveinsdóttir og María Harðardóttir, ritstj. 2016. Vistgerðir á Íslandi. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 54. 299 s. og á vef Náttúrufræðistofnunar.

Simple

Date ( Revision )
2024-03-21
Edition
3. útg.
Edition date
2017-03-17
Purpose
Birta heildstætt yfirlit og lýsing á vistgerðum Íslands, útbreiðslu þeirra, stærð og verndargildi
Status
On going
Originator
Náttúrufræðistofnun – Icelandic Institute of Nature Research - ( )
Urriðaholtsstræti 6-8 , 210 Garðabæ , Ísland
Maintenance and update frequency
As needed
Keywords ( Theme )
  • Habitats and biotopes
  • Land cover
  • Species distribution
  • Hydrography
  • Búsvæði og lífvist
  • Landgerðir
  • Útbreiðsla tegunda
  • Vatnafar
  • Jarðfræði
  • Verndarsvæði
  • GSL
  • INSPIRE
Spatial scope
  • National
GSL flokkun ( Theme )
  • Nature and protection
GEMET - INSPIRE themes, version 1.0 ( Theme )
  • Land cover
Use constraints
Other restrictions
Other constraints
http://www.ni.is/rannsoknir/landupplysingar/skilmalar
Access constraints
Other restrictions
Other constraints
no limitations to public access
Spatial representation type
Grid
Denominator
25000
Metadata language
eng
Character set
UTF8
Topic category
  • Biota
Begin date
2012-01-01
End date
2023-09-30
N
S
E
W
thumbnail


Reference system identifier
EPSG / 3057

Spatial representation info

No information provided.
Distribution format
  • GeoTIFF ( 10.5.0.6491 )

OnLine resource
Niðurhalssíða Náttúrufræðistofnunar Íslands ( WWW:LINK-1.0-http--link )
OnLine resource
Skilmálar (PDF) – Licence (PDF) ( WWW:LINK-1.0-http--link )
OnLine resource
NÍ kortasja 'Vistgerðir og mikilvæg fuglasvæði á Íslandi' ( WWW:LINK-1.0-http--link )
OnLine resource
Landvistgerðir breytingar milli 2. og 3. útgáfu (PDF) ( WWW:LINK-1.0-http--link )
OnLine resource
Vefur Náttúrufræðistofnunar ( WWW:LINK-1.0-http--link )
OnLine resource
Vistgerðir á Íslandi: land (vefur Náttúrufræðistofnunar) ( WWW:LINK-1.0-http--link )
OnLine resource
Fjölritið Vistgerðir á Íslandi (PDF) ( WWW:LINK-1.0-http--link )
OnLine resource
Íslenskt fitjuskrá '530 Vistgerðir' sem tengjast staðlinum ÍST 120 (PDF) ( WWW:LINK-1.0-http--link )
OnLine resource
Skoða gögn í landupplýsingagátt ( WWW:LINK-1.0-http--link )
OnLine resource
Land_–_Terrestrial42916 ( OGC:WMS )

Land – Terrestrial

Hierarchy level
Dataset

Domain consistency

Conformance result

Date ( Publication )
2016-03-24
Explanation
This document describes the ELF Data Specification for all levels of detail considered by ELF. Validation has not been performed.
Pass
Yes

Conformance result

Date ( Publication )
2010-12-08
Explanation
Information required according to INSPIRE Geoportal Validator´s verification report. Validation has not been performed.
Pass
Yes
Statement

3. útgáfa 2024:

Öll strandlína landsins var yfirfarin handvirkt og eyður á milli landvistgerða og fjöruvistgerða lagfærðar. Ennfremur var allt kortið meðhöndlað til þess að mýkja áferð þess fjarlægja sem mest af stökum myndeiningum. Aðgerðin fólst í því að fyrst var svokallaður „Majority-filter“ látinn yfirfara allt kortið og síðan voru minnstu svæðin einangruð og fyllt með gildum úr næsta nágrenni við þau. Þessi aðgerð var gerð tvisvar á öllu kortinu.

Nýjar hraunbreiður sem mynduðust í eldsumbrotum á Reykjanesskaga frá 2021 fram í byrjun árs 2024 eru nú skilgreindar sem eyðihraunavist í kortinu en Náttúrufræðistofnun Íslands tók þátt í að kortleggja hraunin.

Útbreiðsla rimamýravistar var endurskoðuð á landsvísu en grunur var um að útbreiðsla hennar væri nokkuð vanmetin. Líkt og í fyrri útgáfu var vistgerðin kortlögð með tiltækum myndgrunnum eftir einkennandi landformum, þ.e. rimum, sem eru langir þúfnagarðar og liggja þvert á landhalla.

Tveir nýir flokkar landgerða bættust í vistgerðaflokkunina árið 2019 en þeir eru annars vegar skógarkerfill og fleiri áþekkar tegundir og hins vegar uppgræðslur. Skógarkerfill og fleiri áþekkar tegundir hafa nú verið kortlögð í kringum höfuðborgarsvæðið og í Eyjafirði auk fleiri svæða. Uppgræðslur koma jafnframt fyrir í nýrri útgáfu.

Viðbætur og leiðréttingar á kortlagningu jarðhitavistgerða voru unnar út frá vettvangsathugunum úr ýmsum verkefum og byggja á vettvangsgögnum frá 2019-2023.

Að auki voru unnar svæðisbundnar leiðréttingar á vistgerðakorti víða um land sem byggja á vinnu úr ýmsum verkefnum stofnunarinnar. Auk þess var brugðist við utanaðkomandi ábendingum sem stofnuninni höfðu borist.

Ítarlegri upplýsingar um endurskoðun landvistgerða má finna í greinargerð „Landvistgerðir – breytingar milli 2. og 3. útgáfu (PDF), sjá tengil hér fyrir ofan.

2. útgáfa 2018:

Rastakortið er einfaldað þannig að minnsta svæði sem kortlagt er með fjarkönnun er 10 myndeiningar, en hver myndeining er 5 x 5 metrar. Vistgerðir og þekjur sem hafa verið handhnitaðar geta enn verið með svæði sem eru minna en 10 myndeiningar.

Ný jöklaþekja er unnin eftir gögnum frá Veðurstofu Íslands eftir Sentinel-2 gervitunglamyndum frá 2017 nema útlínur Snæfells sem eru frá 2014, nánast nágrenni jöklanna var síðan leiðrétt með hliðsjón af “World Imegary” gagnabankanum frá ESRI.

Ný þekja lúpínu er í 2. útgáfu, helsta breytingin er að búið er að endurskoða alla lúpínukortlagningu eftir myndum, teknum á árunum 2016 og 2017, en þær myndir þekja flest helstu lúpínusvæði landsins.

Hélumosavist á láglendi endurflokkuð í viðeigandi vistgerðir.

Athugasemdir um 25 svæði bárust vegna 1. útgáfu af vistgerðakortinu, athugasemdirnar voru ýmist varðandi stakar vistgerðir, flokkununina almennt eða ósamfellur t.d. þar sem flokkun tveggja mynda passaði ekki saman, samtals eru þessi svæði um 3900 ferkílómetrar, þessi svæði voru leiðrétt samkvæmt athugasemdum. Auk þess voru óflokkuð svæði (nodata) í 1. útgáfu flokkuð í vistgerðir.

Í eigindatöflunni hefur verið bætt við heitum vistlenda og vistgerða, ensk þýðing á vistgerðum, tengill á staðreyndasíður vistgerða og meðalgróðurþekju vistgerða.

Lesa má ítarlegri upplýsingar um endurskoðun landvistgerða í greinagerð 'Landvistgerðir breytingar milli 2. og 3. útgáfu' (PDF), sjá tengil hér fyrir ofan.

1. útgáfa 2017:

Landvistgerðir eru kortlagðar með fjarkönnun og er á rastaformi. Notaðar voru gervitunglamyndir frá RapidEye, Spot og Landsat. Hver mynd var flokkuð með sjálfvirkri aðferð, ISODATA. Sú flokkun ásamt mælingum á gróðursniðum og ýmsum tiltækum gögnum, voru notuð til að ákvarða vistgerðir á landi. Vettvangsvinna og gagnasöfnun fyrir landvistgerðir á miðhálendi Íslands fór fram árin 1999-2002, en á láglendi 2012-2015.

Nokkrar vist- og landgerðir reyndist ekki unnt að kortleggja með fjarkönnun. Þær voru því hnitaðar af skjá með loftmyndir eða gervitunglamyndir sem bakgrunn og síðan breytt yfir á rastaform. Þessar gerðir eru dýjavist, rimamýravist, gulstararfitjavist, sjávarfitjungsvist, sjávarkletta- og eyjavist og alaskalúpína og jarðhitavistir. Sérstök rannsóknarvinna fór fram vegna jarðhitavistgerðanna og fór vettvangsvinna fram 2012-2013, auk þess sem notuð voru vettvangsgögn úr eldri rannsóknum NÍ, 2001-2002 og 2005-2008.

Til þess að ákvarða útbreiðslu hraunavista var byggt á hraunaþekju sem var yfirfarin og lagfærð þannig að hún næði yfir hraun sem eru vel sýnileg á yfirborði. Vistgerðir sem sköruðust við hraunaþekjuna voru umflokkaðar. Þannig voru móavistir flokkaðar sem lynghraunavist. Mosavistir voru á sama hátt flokkaðar í mosahraunavist og melavistir og sanda- og vikravist flokkaðar í eyðihraunavist. Til að kortleggja skriðuvistir og kletta var melavistum og mosavistum breytt í skriðuvistir þar sem halli var yfir 20° skv. landlíkani Loftmynda ehf. frá 2012. Þéttbýli og mannvirki voru kortlögð með því að nota mannvirkjalag IS 50v úr landupplýsingagrunni Náttúrufræðistofnunar og úr landupplýsingagrunni Loftmynda ehf. frá árinu 2016, auk þess sem tekið var 5 og 10 metra belti frá miðlínu helstu vega. Útbreiðsla náttúrulegs birkilendis og ræktaðs skóglendis var fengin úr landupplýsingagrunni Skógræktar ríkisins frá árinu 2015 og útbreiðsla ræktaðs lands úr landupplýsingagrunnum frá Landbúnaðarháskóla Íslands frá 2009 og Bændasamtökum Íslands 2015. Afmörkun jökla var fengin úr IS 50 landupplýsingagrunni Náttúrufræðistofnun frá 2016. Vatnafar var fengið úr landupplýsingagrunni Náttúrufræðistofnun og landupplýsingagrunni Loftmynda ehf. frá 2016.

Jarðhitavistgerðir eru skjáhnitaðar eftir loftmyndum Loftmynda ehf. og innrauðum SPOT gervitunglamyndum.

Fyrirvari um flokkun vistgerða

Náttúrufræðistofnun Íslands leggur með ritinu Vistgerðir á Íslandi fram tillögur að flokkun vistgerða sem á sér fyrirmynd í samræmdri og viðurkenndri flokkun vistgerða í Evrópu. Flokkunin byggir á rannsóknum víða um land með fyrirvara um að bæta mætti í þá þekkingu.

Við gerð vistgerðakorts voru landvistgerðir að mestu leyti aðgreindar með fjarkönnun sem reyndist erfitt. Má sem dæmi nefna að ekki var unnt að greina á milli sumra vistgerða sem voru lítið grónar með neinni vissu. Að sama skapi reyndist erfitt að greina á milli vel gróinna vistgerða og átti þetta einkum við um vistgerðir innan sama vistlendis, svo sem graslendisvistgerðir og sumar votlendisvistgerðir. Einnig gat verið erfitt að greina á milli vistgerða í mismunandi vistlendum, til dæmis á milli sumra votlendisvistgerða og mólendisvistgerða þar sem gróska er lítil. Gróðurfarslegur skyldleiki getur haft áhrif á möguleika á greiningu. Þar má nefna skil á milli grasmóavistar og graslendisvistgerða eða mosamóavistar og moslendisvistgerða. Sömuleiðis geta ólíkar vistgerðir haft að geyma sömu algengu plöntutegundirnar sem gervitunglin nema vel. Dæmi um þetta eru runnamýravist, fjalldrapamóavist, grasengjavist, lyngmóavistir, víðimóavist og víðikjarrvist sem allar hafa víði eða fjalldrapa sem algengar tegundir. Því má í sumum tilvikum gera ráð fyrir að um verulegar skekkjur sé að ræða þótt þær séu mismiklar eftir vistgerðum. Hvað varðar kortlagningu á vistlendum sýnir kortið yfirleitt raunsanna mynd af stærð og útbreiðslu þeirra á landinu þótt ýmsar villur fyrirfinnist. Notendum kortsins er bent á ritið Vistgerðir á Íslandi fyrir nánari útlistun og mat á skekkjum sem finna má í aðferðalýsingu og á staðreyndasíðum vistgerða.

Náttúrufræðistofnun tekur við ábendingum um leiðréttingar á vistgerðakorti í gegnum netfangið ni@ni.is (Subject: Ábending um leiðréttingar á vistgerðakorti).

gmd:MD_Metadata

File identifier
5c5138ae-b21c-4288-832f-e1c1d0733f3e XML
Metadata language
en
Character set
UTF8
Parent identifier
NI_VG25 Vistgerðir á Íslandi 3. útgáfa – 1:25.000 edb37dea-bd1f-46e4-a2e0-933fe2edecfe
Hierarchy level
Dataset
Date stamp
2024-08-19T13:10:35
Metadata standard name
ISO 19115:2003/19139
Metadata standard version
1.0
Point of contact
Náttúrufræðistofnun – Icelandic Institute of Nature Research - ( )
 
 

Overviews

overview
Vistgerðir á Íslandi: land – smámynd

Spatial extent

N
S
E
W
thumbnail


Keywords

Búsvæði og lífvist GSL Habitats and biotopes Hydrography INSPIRE Jarðfræði Land cover Landgerðir Species distribution Vatnafar Verndarsvæði Útbreiðsla tegunda
GEMET - INSPIRE themes, version 1.0
Land cover
GSL flokkun
Nature and protection

Provided by

logo

Associated resources

Not available


  •  
  •  
  •