From 1 - 8 / 8
  • Categories  

    Stöðumat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda Íslands. Landupplýsingaþekjan fyrir stöðumat Grólindar er á rastaformi. Nákvæmni gagna miðast við mælikvarða 1:100.000. Stöðumat GróLindar sýnir, á grófum kvarða, stöðu gróður- og jarðvegsauðlinda Íslands eins og hún er í dag. Stöðumatið er unnið upp úr kortlagningu vistgerðaflokka Náttúrufræðistofnunar Íslands frá 2016 og kortlagningu á jarðvegsrofi á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Landgræðslunni frá 1997. Frekari upplýsingar um aðferðafræðina á bak við stöðumatið má sjá í ritinu: Bryndís Marteinsdóttir, Elín Fjóla Þórarinsdóttir, Guðmundur Halldórsson, Jóhann Helgi Stefánsson, Jóhann Þórsson, Kristín Svavarsdóttir, Magnús Þór Einarsson, Sigþrúður Jónsdóttir og Sigmundur Helgi Brink, 2020. Stöðumat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda Íslands. Aðferðafræði og faglegur bakgrunnur. Rit Landgræðslunnar nr. 3. Gunnarsholt, Ísland. https://grolind.is/wp-content/uploads/2020/06/GroLind_stodumat_18_06_2020.pdf

  • Categories  

    Kortlagning beitarlanda sauðfjár á Íslandi. Landupplýsingaþekjan fyrir beitarlönd sauðfjár er á vektorformi. Nákvæmni gagna miðast við mælikvarða 1:100.000. Frekari upplýsingar um aðferðafræðina á bak við kortlagningu beitarlanda sauðfjár má sjá í ritinu: : Jóhann Helgi Stefánsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Iðunn Hauksdóttir, Elín Fjóla Þórarinsdóttir, Bryndís Marteinsdóttir og Sigmundur Helgi Brink, 2020. Kortlagning beitarlanda sauðfjár á Íslandi. Rit Landgræðslunnar nr. 4. Gunnarsholt, Ísland. https://grolind.is/wp-content/uploads/2020/06/Kortlagning-beitilanda-2020.pdf

  • Categories  

    Gagnasett sem sýnir yfirlitsupplýsingar um helstu svæði þar sem landgræðsla er stunduð og Landgræðslan kemur að á einn eða annan hátt. Undanskilin eru þó svæði í verkefninu Bændur græða landið.

  • Categories  

    Línuþekja sem inniheldur upplýsingar um varnarmannvirki sem gerð hafa verið til að stöðva eða verjast landbroti þ.e. varnargarðar og bakkavarnir.

  • Categories  

    Gögnin innihalda upplýsingar um uppgræðsluaðgerðir Landgræðslunnar sem staðsettar hafa verið á korti.

  • Categories  

    Gagnasett sem sýnir yfirlitsupplýsingar um helstu uppgræðslusvæði í verkefninu "Bændur græða landið".

  • Categories  

    Gagnasett sem sýnir yfirlitsupplýsingar um landgræðslugirðingar sem Landgræðslan á og/eða hefur umsjón með.

  • Categories  

    Gagnagrunnur sem inniheldur upplýsingar um jarðvegsrof á Íslandi. Heildarúttekt á jarðvegsrofi á öllu Íslandi, unnin á árunum 1992-1997. Unnið með vettvangsúttekt þar sem LANDSAT gervitunglamyndir í mælikvarða 1:100.000 voru notaðar sem grunnur við kortlagninguna.