From 1 - 2 / 2
  • Categories  

    Notagildi: Reitakerfi eru nauðsynlegt til að birta upplýsingar sem af einhverjum ástæðum er ekki hægt að birta stakar s.s. vegna persónuverndar, umfangs verkefnis eða nákvæmni þeirra upplýsinga sem fyrir liggja. Reitakerfi Íslands er með mismunandi reitastærðum til að mæta mismunandi þörfum notenda við upplýsingamiðlun. Mælt er með notkun reitakerfisins m.a. þegar verið er að bera gögn saman milli stofnana. Reitakerfið er byggt á Lambert Azimuthal Equal Area vörpun sem tryggir að allir reitir sé jafn stórir. En það er helsta skilyrði þess að reitakerfið sé Inspire tækt. Viðmiðun er ISN 2004 Ef reitakerfið er notað í einhverjum af ISN Lambert vörpunum er það ferhyrnt. Orðskýringar: Heildarkerfið er nefnt reitakerfi. Hvert lag í því er nefnt net. Einingar í netinu eru nefndar reitir. Heiti reitana: Hver reitur hefur nafn sem er einkvæmt og er m.a. byggt upp á stærðareiningunni. 1km 10km og 100m skrárnar ná yfir strandlínu og eyjar landsins en 100km skráin nær yfir alla efnahagslögsöguna. grid_100k grid_50k grid_25k grid_10k grid_5k grid_2_5k grid_1k grid_500m grid_250m grid_100m Frekari tækniupplýsingar er að finna hér https://inspire.ec.europa.eu/id/document/tg/gg

  • Categories  

    Gagnaflokkur með fjórum gagnasettum: (1) gráðureitum norðaustur af Íslandi, (2) afmörkun norðurhluta Drekasvæðisins, (3) reitakerfi sama svæðis og (4)svæðisafmörkun JM samkomulagssvæðis Íslands og Noregs