Keyword

Raster gögn LMÍ

2 record(s)
 
Type of resources
Available actions
Provided by
Formats
Representation types
Update frequencies
status
Scale
From 1 - 2 / 2
  • Categories  

    Þessi þekja sýnir mælikvaðaskekkjur (Scale) fyrir Lambert Conformal Conic (2SP) kortavörpunina sem oftast er notuð fyrir ISN hnitakerfin, stundum nefnd ISNET vörpun. ISN93 EPSG:3057, ISN2004 EPSG:5325 og ISN2016 EPSG:8088. Þegar mælikvarðinn er jákvæður þýðir það að raunveruleg lengd er styttri en lengd reiknuð með kortahnitum og öfugt ef kvarðinn er neikvæður. 1 ppm jafngildi 1mm á kílómeter. Til þess að fá góða nálgun á raunverulegri lengd á sporvölu GRS80 er kortalengd með mælikvarðanum. Sem dæmi ef mælikvarðinn er 300 ppm þýðir það að 1000,30m í kortahnitum er í raun 1000m.

  • Categories  

    Þessi þekja sýnir stefnuskekkjur (Meridian Convergence) fyrir Lambert Conformal Conic kortavörpunina sem oftast er notuð fyrir ISN hnitakerfin, stundum kölluð ISNET vörpun. ISN93 EPSG:3057, ISN2004 EPSG:5325 og ISN2016 EPSG:8088. Stefnuskekkjan segir okkur hvernig norðurstefna á korti víkur frá raunverulegri norðurstefnu á sporvölu GRS80. Þetta veldur því að fyrirbæri virðast norðar en þau í raun og veru eru út frá lengdarási vörpunarinnar sem er 19°vestur í okkar tilfelli. Því lengra sem við fjarlægjumst ásinn þeim mun meir bjögun fáum við. Sem dæmi er norðurhnit Hraunhafnatanga um 270m hærra en norðurhnit Rifstanga í ISNET vörpun, en í raun er Rifstangi um 65m norðar þegar hnattstað hans er skoðuð í baughnitum á sporvölu GRS80. Hraunhafnatangi er um 7,4km austar en Rifstangi.