From 1 - 10 / 29
  • Categories  

    Uppréttar loftmyndir, unnar úr loftmyndum teknum 16.7.2010 úr 2700 m.y.s. Stafræn myndataka með 4 böndum, þ.e. lit og innrauðu. Stærð svæðis er 570 km2. Myndir á óþjöppuðu Tiff-formi. Stærð myndeininga 0,4 m. Klipptar í blöð að stærð 5x5 km. Hnitakerfi er ISN93 kortvörpun.

  • Categories  

    Uppruni: Gögnin komu frá Samsýn ehf og voru unnin upp úr loftmyndum teknum 17.7.2010 úr 2.700 m.y.s. Stafræn myndataka með 4 böndum, þ.e. lit og innrauðu. Stærð svæðis 160 km2. Myndir teknar af Blom. Myndavél, Vexcel UltraCam D. Afhent gögn: Uppréttar myndir: Myndir á óþjöppuðu TIFF formi. Stærð myndeininga 0,2 m. Klipptar í blöð að stærð 2 x 2 km. Nafngiftir og staðsetning blaða gengur upp í 2 km reitakerfi LMÍ. Hnitakerfi er ISN93, lambert kortvörpun. Afhent 2 sett af myndum: - Hefðbundnar 3ja banda litmyndir – litajafnaðar - 4 banda myndir með rauðu, grænu, bláu og innrauðu bandi Útgáfudagsetningin 09.12.2010 er tekin af lýsingunni sem fylgdi gögnunum til LMÍ. LMÍ gerði nytjaleyfissamningur um gögn Samsýnar ehf úr loftmyndum af Eyjafjallajökli og Markarfljóti, í umboði nokkurra stofnanna: - Vegagerðin - Landgræðslan - Veðurstofa Íslands - Umhverfisstofnun - Náttúrufræðistofnun. Gögnin voru unnin úr loftmyndum, annars vegar úr háflugi yfir Eyjafjallajökli og hluta Mýrdalsjökuls og hins vegar úr lágflugi yfir Markarfljóti. Ástæðan fyrir því að farið var út í þetta verkefni var eldgosið sem átti sér stað sama ár (2010)í Fimmvörðuhálsi. Tilgangurinn var að greina breytingarnar sem eldgosið orsakaði. Verkefnið var tvískipt: Annars vegar var um að ræða þetta myndkort og hins vegar hæðarlíkan. Sjá hér í Landupplýsingagáttinni undir "Markarfljót - hæðarlíkan".

  • Categories  

    Samsettar og uppréttar sögulegar loftmyndir af Íslandi. Unnið er að því að staðsetja loftmyndir frá 1994 – 2000 úr loftmyndasafni Landmælinga Íslands (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/d2323e18-ab9f-495d-8a4e-58c2a5fb096e ). Myndir eru birtar jafnóðum og búið er að staðsetja þær en ætlunin er að staðsetja eldri myndir síðar. Svæði af myndum sem teknar voru í sama flugi og úr sömu flughæð eru sett saman. Upplausn myndanna er yfirleitt 50 cm. Búið er að vinna myndirnar með sjálfvirkum aðferðum. Ákveðnar staðsetningar eru valdar af gervitunglamyndum (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/e542c260-6431-48a5-8065-93350b8cb3a1) og stilltar af á IslandsDEM landhæðalíkaninu (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/e6712430-a63c-4ae5-9158-c89d16da6361 ). Gerð eru nákvæm landhæðalíkön úr sögulegu loftmyndunum þar sem hæðarnákvæmni er yfirleitt innan við 1 m. Líkönin eru síðan notuð til að staðsetja loftmyndirnar. Áætluð staðsetningarnákvæmni myndanna er minna en 2 m. ---------------------------------------------------------------------------------------------------------------- This repository includes orthorectified and mosaicked historical aerial images from all over Iceland. The datasets are created from historical aerial images on film from the years 1994- 2000 from the aerial photograph collection of the NLSI (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/d2323e18-ab9f-495d-8a4e-58c2a5fb096e). Each mosaic is created from images taken on the same day at approximately the same height. The resolution of the mosaics is usually 50 cm. The historical photographs have been processed using automated methods of detection of points of interest (control points?) using the Maxar mosaic (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/e542c260-6431-48a5-8065-93350b8cb3a1)) followed by a refined correction of the cameras using the IslandsDEM (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/e6712430-a63c-4ae5-9158-c89d16da6361) as reference. For each block of historical photographs, an accurate Digital Elevation Model (DEM) is created (where the vertical accuracy is typically better than 1 m), which is used to orthorectify the aerial photographs. The estimated horizontal accuracy of the orthorectified aerial imagery is better than 2 meters.

  • Categories  

    Nú hafa Landmælingar Íslands útbúið vefkort með því að staðsetja og klippa saman hin svokölluðu Herforingjaráðskort. Eftirfarandi lýsing á Herforingjaráðskortum er tekin af vef Landsbókasafns: Á síðasta áratug 19. aldar varð dönskum yfirvöldum ljóst að þau kort sem til voru af Íslandi stæðust ekki þær kröfur sem gera þyrfti í samfélagi þess tíma. Bestu kort af Íslandi sem buðust voru í stórum dráttum byggð á strandmælingum danska sjóhersins sem fram fóru á árunum 1801-1818 annars vegar og hins vegar á kortum Björns Gunnlaugssonar sem byggð voru á fyrrnefndum strandmælingum og eigin mælingum Björns á árunum 1831-1843. Á fjárlögum 1899 voru veittar 5000 krónur og skyldi hefja nýjar þríhyrninga- og strandmælingar á Reykjanesi. Árið 1900 var gefin út í Danmörku tilskipun um að sendur skyldi leiðangur til Íslands til að mæla hér grunnlínu og hnattstöðu. Síðan var ætlunin að mæla þríhyrninganet út frá nýju grunnlínunni. Hingað voru sendir danskir liðsforingjar og sumarið 1900 var unnin ýmis undirbúningsvinna. Árið 1902 höfðu fjárveitingar verið auknar svo að rétt þótti að hefjast handa. Byrjað var á Hornafirði og mælt vestur ströndina og um lágsveitir Suðurlands en uppsveitum og hálendi frestað. Verkinu var svo haldið áfram tvö næstu árin en féll niður 1905 vegna fjárskorts og annarra anna hjá Landmælingadeild danska herforingjaráðsins (Generalstabens topografiske Afdeling) er tókst verkið á hendur. Eftir eins árs bið var þráðurinn tekinn upp að nýju enda bættist nú við fjárstyrkur úr ríkissjóði Dana. Á árunum 1906-1914 var unnið öll sumur, nema 1909, þegar ekkert var aðhafst. Var þá lokið byggðamælingum sunnanlands og mælt um Vesturland, norður og austur um Húnaflóa. Árangurinn var 117 kortblöð af þriðjungi landsins, suður- og vesturhluta, í mælikvarða 1:50.000 (auk nokkurra sérkorta af afmörkuðum svæðum). Þau eru gjarnan nefnd herforingjaráðskortin í höfuðið á þeim sem stóðu fyrir gerð þeirra.

  • Categories  

    Um er að ræða 65 loftmyndir úr Breiðafirðinum af svæði sem kallað er Breiðasund. Myndirnar eru bæði innrauðar og í lit. Greinihæfnin er 0,5 metrar. Myndirnar eru teknar úr 5000-5500 m hæð. Flatarmál svæðisins er 260 km2. Myndkort gert bæði í lit og innrauðum lit í blaðskiptingu Reitakerfi Íslands 5 x 5 km. Myndir eru teknar á myndavél sem heitir Vexcel UltraCam D. Unnið af Samsýn ehf. Úr myndunum var einnig gert hæðarlíkan og gögnum skilað sem vektorgögnum, þ.e. punktar, brotlínur og 2m hæðarlínur. Hæðarlíkani á rastaformi var ekki skilað. Sjá hér í landupplýsingagáttinni "Breiðafjörður-hæðarlíkan og línur".

  • Categories  

    Nýjasta Landsat gervitunglið, nr.8, er í umsjá Bandarísku jarðfræðistofnunarinnar og NASA. Því var skotið á loft í febrúar 2013. Tekist hefur að afla góðra mynda með þessu tungli og sett var saman mósaíkmynd af Íslandi með Landsat 8 myndum. Kostir Landsat 8 gervitunglsins er m.a. stærð mynda, en hver mynd er 185 x 180 km og þekur því um 33000 km2. Greinihæfni þessara mynda er mest 15 m. Myndirnar eru fjölrása með alls 11 bönd þar sem hvert band nemur ákveðnar bylgjulengdir sem endurspegla vissa eiginleika landyfirborðsins, t.d. gróður, vatn, o.fl. Myndirnar voru nær allar teknar í ágúst og september árin 2013 og 2014.

  • Categories  

    Samsett, innrauð heildarmynd af Íslandi, unnin úr 16 Landsat TM myndum eftir böndum 3,2, og 4. Myndeiningar eru 30 x 30. Upprétt miðað við 1:50.000 staðfræðikort og mælingar.

  • Categories  

    Samsett heildarmynd af Íslandi í náttúrulegum litum unnin úr 16 Landsat TM myndum eftir böndum 3,2,1. Myndeiningar eru 30 x 30, upprétt miðað við 1:50.000 staðfræðikort og mælingar

  • Categories  

    Árið 2021 gerðu Loftmyndir ehf. og Landmælingar Íslands samning til eins árs, um aðgang að myndþekju Loftmynda ehf. fyrir allar A-hluta ríkisstofnanir. Þegar samningurinn rann út var hann framlengdur og tók umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisið við hlutverki Landmælinga Íslands sem samningsaðili. Með samningnum veita Loftmyndir leyfishafa aðgang að og rétt til að nota myndkortaþekju félagsins, þ.e. af þeim hluta Ísland og nærliggjandi eyja sem til er í gagnagrunni félagsins við undirritun samningsins og þeirra viðbóta sem verða til í gagnagrunni félagsins á samningstíma, en það eru: a. Myndkort með 0.1 m. myndeiningum af lágflugssvæðum. b: Myndkort með 0.25 m. myndeiningum af miðflugssvæðum. Samningurinn tekur við af öðrum samningum sem eftir atvikum kunna að vera í gildi við einstaka A-hluta stofnanir ríkisins, hvað varðar aðgang að myndkortum félagsins. Ef einstaka A hluta stofnanir ríkisins eru með samning um annars konar þjónustu frá félaginu heldur sá samningur gildi sínu nema viðkomandi stofnun og félagið semji um annað.

  • Categories  

    Flokkuð gervitunglamynd af öllu Íslandi þar sem yfirborð hefur verið flokkað í 8 flokka. Stærð myndeininga er 100 x 100 m. Unnið eftir 12 Landsat TM myndum á tímabilinu 1986-1992. Unnin hjá LMÍ 1991-1993 i samvinnu við Landgræðslu ríkisins og Landbúnaðarháskólann.