Elevation
Type of resources
Available actions
Topics
INSPIRE themes
Keywords
Contact for the resource
Provided by
Years
Formats
Representation types
Update frequencies
status
Service types
Scale
Resolution
-
Íslenska: Frá 2015 hefur verið opið aðgengi að hæðargögnum af Norðurheimskautinu (norður af 60°N, þar með talið af Íslandi). Gögnin hafa gengið undir nafninu ArticDEM og eru frá Polar Geospatial Center sem er staðsett í University of Minnesota (https://www.pgc.umn.edu/data/arcticdem/). Gögnin urðu til við vinnslu mikils magns af landhæðarlíkönum, flest frá 2012 en elstu gögnin eru frá 2008. Landhæðarlíkönin eru unnin úr steríópörum af gervitunglamyndum frá WorldView 1-3 og GeoEye-1. Notast var við SETSM sem er opinn hugbúnaður fyrir stafrænar myndmælingar á Bluewaters ofurtölvu University of Illinois. Hvert landhæðarlíkan hefur 2x2 m upplausn og dekkar um 18X100 km stórt svæði á jörðu. Samstarf Landmælinga Íslands, Veðurstofunnar og Polar Geospatial Center leiddi til þess að eftirfarandi aðferðir voru þróaðar til þess að vinna með gífurlegt magn gagna. Aðferðirnar eru: 1- Samræma staðsetningu allra landhæðarlíkana 2-Búa til samsett landhæðarlíkan úr öllum líkönunum með því að búa til þekju sem geymir tíma gagnanna. Hver pixill í samsetta líkaninu sem er unnið úr ArcticDEM er miðgildi allra líkana sem fyrirfinnast á svæðinu. English: Since 2015, elevation data from the Arctic (north of 60°N, including Iceland) started to be openly available through the ArcticDEM project, led by the Polar Geospatial Center, University of Minnesota (https://www.pgc.umn.edu/data/arcticdem/). This data consists of a large amount of Digital Elevation Models (DEMs) repeatedly acquired (multitemporal), typically from 2012-present, and the oldest data reaching back to 2008. The DEMs are derived from satellite sub-meter stereo imagery, particularly from WorldView 1-3 and GeoEye-1. The processing of the DEMs was done using SETSM, an open-source digital photogrammetric software, in the Bluewaters supercomputer (University of Ilinois). Each DEM has 2x2m resolution and a footprint of ~18x100km. In a collaborative effort between the National Land Survey of Iceland, the Icelandic Meteorological Office and the Polar Geospatial Center, we developed methods to handle and process a large amount of data available for Iceland. The methods developed consisted of: 1-Spatial adjustment of all the available DEMs, for homogeneity and consistency in the location of each individual DEM. 2-Robust mosaicking into one single DEM of Iceland, by taking advantage of the multi-temporal coverage of DEMs. Each pixel of the mosaic corresponds to a median elevation value from the possible elevations available from the ArcticDEM.
-
Gögnin voru tekin saman í byrjun árs 2015. Þau eru sett saman úr dýptarlínum úr sjókortum í tveimur mælikvörðum. Annars vegar í 1:100.000 og hins vegar í 1:300.000. Dýptarlínur í sjókortum eru ekki með jöfnu bili. Dýptarlínurnar eru þessar: 10 m, 20 m, 50 m, 75 m, 100 m, 150 m, 200 m, 300 m, 400 m, 500 m, 1000 m, 1500 m og 2000 m. Landhelgisgæsla Íslands safnaði gögnunum og annast um drefingu. Gögnin ná ekki til alls landsins. Helstu eigindi eru jafndýpislínur með dýpisgildi. Um er að ræða stök kort eða samsett í stærri heild á shape formi.
-
Árið 2000 réðst Hafrannsóknarstofnunin í viðamikla kortlagningu hafsbotnsins með tilkomu hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar RE 200. Skipið er búið fjölgeisladýptarmæli (e. multibeam echo sounder) sem sérstaklega er ætlað til þess verkefnis. Markmið verkefnisins er að afla þekkingar um hafsbotninn innan efnahagslögsögu Íslands sem mun nýtast í margháttuðum tilgangi og er forsenda fyrir vísindalegri nálgun við sjálfbærri nýtingu, vernd og rannsóknir auðlinda í hafinu, á, í og undir hafsbotni. Hingað til hefur þekkingin nýst við rannsóknir á lífríki hafsins, eðliseiginleikum sjávar og jarðfræði hafsbotns. Hafrannsóknastofnun veitir almennan aðgang að fjölgeislamæligögnum um kortlagningu hafsbotnsins á eftirtöldum svæðum: Arnarfjörður Drekasvæði Hali Dohrnbanki Ísafjarðardjúp Jökulbanki Kolbeinseyjarhryggur og nágrenni Kolluáll Kötluhryggir Langanesgrunn Látragrunn Nesdjúp Reykjaneshryggur og nágrenni Suðaustan Lónsdjúps Suðvestan Jökuldjúps Sunnan Selvogsbanka Sunnan Skeiðarárdjúps Sunnan Skerjadjúps Vesturdjúp Víkuráll
-
Í desember 2011 var ný geóíða reiknuð fyrir Ísland í samstarfi við DTU Space í Danmörku. Megin tilgangur þessara útreikninga var að reikna nýja og nákvæmari geóíðu af Íslandi og tengja hana við Landshæðarkerfi Íslands ISH2004. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Landmælinga Íslands, nánar tiltekið hér: https://www.lmi.is/is/maelingar/grunnkerfi/geoida
-
Niðurhalsþjónustur Landhelgisgæslu Íslands
-
Skoðunarþjónustur Landhelgisgæslu Íslands
-
ELF Elevation (EL) Iceland is one of 12 themes in the European Location Project (ELF). The purpose of ELF is to create harmonised cross-border, cross-theme and cross-resolution pan-European reference data from national contributions. The goal is to provide INSPIRE-compliant data for Europe. A description of the ELF (European Location Project) is here: http://www.elfproject.eu/content/overview Encoding: INSPIRE version 4
-
Skoðunarþjónustur Hafrannsóknastofnunar
-
Þann 16. mars 2011 gáfu Landmælingar Íslands út í fyrsta sinn sameiginlegt hæðarkerfi fyrir Ísland. Kerfið er kallað Landshæðarkerfi Íslands og er viðmiðunin ISH2004. Tilkoma sameiginlegs hæðarkerfis markaði stór tímamót í sögu landmælinga á Íslandi. Á sama hátt og viðmiðunin ISN93 skapaði grundvöll fyrir alla til að vinna í sama hnitakerfi mun ISH2004 skapa grundvöll fyrir alla til að vinna í sama hæðarkerfi. Eitt samræmt hæðarkerfi er mikilvægt fyrir ýmsar framkvæmdir s.s. vegagerð og jarðgangnagerð og á ýmsum sviðum umhverfisvöktunar, skipulags og áætlanagerðar. Auk þess munu gögnin nýtast við rannsóknir á jarðskorpuhreyfingum eða breytingum á yfirborði sjávar. Mælingar á Landshæðarkerfinu eru standa ennþá yfir og frá fyrstu útgáfu þess árið 2011 hafa bæst við eftirfarandi línur hallamælilínur. • Flókalundur-Bolungavík • Reykjavík-Keflavík • Endurmæling á Suðurlandi vegna jarðskjálftans 2008 • Hellisheiði • Reykjanesbraut-Grindavík • Þjóðvegur 1-Akranes • Kjölur Niðurstöður nýrra mælinga verður bætt inn í þetta gagnasett um leið og þær liggja fyrir.
-
Niðurhalsþjónustur Hafrannsóknastofnunar